NÁMSEFNI UM SJÁLFBÆRNI Í TEXTÍLMENNT
Titill námsvefsins “Gera sjálfur” vísar til daglegs lífs mannsins eins og það var í árþúsundir allt til þess tíma að neysluhyggjan varð alls ráðandi í samfélagi okkar. Þegar líf fólks hætti smám saman að snúast um að sjá sjálft um sínar daglegu þarfir og fór að snúast um að geta keypt sífellt meira. Hlutirnir urðu í ríkari mæli einnota, þeim hent ef þeir biluðu og nýir keyptir. Um leið mætti segja að fólk hafi aftengst sínum daglegu þörfum og gerviþarfir urðu til. Keðjan sem gekk út á að verk sem unnin voru á heimilum og lærðust frá kynslóð til kynslóðar hefur rofnað og kunnáttan til að bjarga sér sjálfur í hinu daglega lífi er almennt ekki lengur fyrir hendi. Hlutir eru yfirleitt keyptir án umhugsunar um úr hverju þeir eru gerðir, hvernig og hver gerði þá og síðan er þeim hent án þess að hugsa um afleiðingarnar. Lífstíll og neyslumynstur okkar ráða miklu um stöðu og þróun umhverfismála. Með því að horfa á söguna og læra af henni má þannig öðlast tæki til að breyta neysluháttum sínum og taka upp nýtni og hófsemi forfeðra okkar.
Þar með er ekki sagt að lausnin á öllum okkar vandamálum liggi í því að hverfa aftur til fortíðar. Þvert á móti hefur aldrei verið meiri þörf fyrir víðsýnt, gagnrýnið, ábyrgt og skapandi fólk en einmitt núna til þess að kynslóð framtíðarinnar nái að aðlagast og yfirvinna hin margháttuðu vandamál sem mannkynið stendur frammi fyrir. Textíl-og tískuiðnaðurinn er meðal mest mengandi iðnaðarframleiðslu í heiminum og þess vegna er mikilvægt að textílmennt sé hluti af sjálfbærnimenntun og umhverfisfræðslu. Fatnaður og skynditíska er stór hluti neyslu ungs fólks og því nauðsynlegt að fræða þá kynslóð sem nú er að vaxa upp um fataiðnaðinn, mengunina sem fylgir framleiðslunni og flutningum, aðbúnað og kjör fólksins sem vinnur við hann, skynditísku, fatasóun og textílúrgang. Á námsvefnum eru verkefni sem stuðla að því að opna augu nemenda fyrir því að nýta það sem til er og minnka þannig neysluna. Markmið verkefnanna er að vinna með gildi eins og nýtni og hófsemi, opna augu nemenda fyrir því að úrgangur geti verið dýrmætt hráefni til þess að skapa nýja hluti og að þjálfa verkkunnáttu og færni til bjarga sér öðruvísi en að henda og kaupa nýtt. Að með nýtni og verkunnáttu í farteskinu megi gera nauðsynlegar breytingar á lífsstíl sínum til að snúa stöðunni við. Einnig verkefni sem hjálpa nemendum að njóta hversdagsins og náttúrunnar, skoða og rannsaka hið stóra og smáa í umhverfi okkar, með það að markmiði að öðlast betri tengsl við raunveruleikann, náttúruna og umhverfið. Á vefnum er einnig fræðsluefni sem er nauðsynlegur inngangur að verkefnunum. Til þess að skilja vandann er mikilvægt að þekkja hann. Fræðsluefninu er ætlað að stuðla að bættri siðferðiskennd og hvetja til gagnrýnnar hugsunar á sviði neyslu- og umhverfishegðunar. Námsefnið samræmast áherslum í Aðalnámskrá grunnskóla og nær til allra grunnþátta menntunar með einum eða öðrum hætti. Námsefnið samræmist einnig Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og markmiðum verkefnis Landverndar um Skóla á grænni grein. |