TEXTÍLMENNT & SJÁLFBÆRNI
  • HEIM
  • Leiðbeiningar
    • Notkun á námsefninu
  • Fræðsla
    • Sjálfbærni
    • Neysla
    • ​Textíl-og tískuiðnaðurinn >
      • Fatasóun
      • Skynditíska
      • Sjálfbær Tíska
    • Úrgangur
    • Hvað getum við gert?
  • Börn Hafa Áhrif
  • Verkefni
    • Endurvinnslu Verkefni
    • Náttúrutengd Verkefni
    • Samfélagstengd Verkefni
  • Ítarefni
  • Um Okkur

HÆFNIVIÐMIÐ FYRIR VERKEFNI UNNIN Í NÁTTÚRUNNI - ÚTIKENNSLUVERKEFNI

HÆFNIVIÐMIÐ ÚR AÐALNÁMSKRÁ

Sameiginleg hæfniviðmið fyrir list-og verkgreinar:​​​

1. - 4. bekkur:
• unnið eftir einföldu ferli frá hugmynd til afurðar,
• hagnýtt þá leikni sem hann hefur öðlast í einföldum verkefnum,
• útskýrt á einfaldan hátt áhrif vinnu sinnar á umhverfið,  
• tjáð sig á einfaldan hátt um viðfangsefni sitt,
• gengið frá eftir vinnu sína,
​• unnið einföld verkefni í hópi.
5. - 7. bekkur:
• útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd til afurðar,
• hagnýtt leikni og þekkingu sem hann hefur öðlast til að takast á við fjölbreytt viðfangsefni,
• haft sjálfbærni að leiðarljósi í vinnu sinni,
• beitt helstu tækni sem námsgreinin býr yfir,  
• sýnt ábyrga og örugga umgengni við vinnu og frágang á vinnusvæði,
​• tekið tillit til annarra í hópvinnu og sýnt frumkvæði,
8. - 10. bekkur:
• unnið sjálfstætt eftir vinnuferli frá hugmynd til lokaafurðar og greint frá mismunandi nálgun við vinnuna,
• hagnýtt þá sérhæfðu leikni og þekkingu sem hann hefur öðlast á skapandi hátt og sýnt frumkvæði,
• skipulagt vinnu sína með sjálfbærni í huga,
• beitt þeirri tækni sem námsgreinin býr yfir á sjálfstæðan hátt,  
• sýnt frumkvæði í góðri umgengni og frágangi á vinnusvæði,
​• tekið þátt í samvinnu með sameiginlegt markmið hópsins að leiðarljósi.

Hæfniviðmið fyrir textílmennt:

1. - 4. bekkur:
• notað ný og endurunnin efni í textílvinnu.
• notað einfaldar aðferðir greinarinnar og beitt viðeigandi áhöldum,
• unnið úr nokkrum gerðum textílefna,
​• unnið eftir einföldum leiðbeiningum.
• tjáð hugmyndir sínar með einfaldri skissu,
• skreytt textílvinnu á  einfaldan hátt.
5. - 7. bekkur:
• gert grein fyrir endurnýtingu og efnisveitum.​
• beitt grunnaðferðum og áhöldum greinarinnar,
• fjallað um efnisfræði og unnið úr fjölbreyttum textílefnum,
• þróað eigin hugmyndir í textílverk og unnið eftir ferli,
• notað fjölbreyttar aðferðir við skreytingar textíla,
• nýtt helstu miðla til að afla upplýsinga um textíla og textílvinnu.
​
8. - 10. bekkur:
  • sagt frá vinnslu textílefna við mismunandi aðstæður og sett í samhengi við sjálfbærni og umhverfisvernd.
  • beitt fjölbreyttum aðferðum og áhöldum greinarinnar við formun textílafurða,
  • rökstutt eigið val á textílefni eftir viðfangsefni og efnisfræði,
  • beitt skapandi og gagnrýnni hugsun í hönnun og textílvinnu,
  • skreytt textílafurð á skapandi og persónulegan hátt,
  •  nýtt margvíslega miðla til að afla upplýsinga á gagnrýninn hátt um efni sem tengist textílsögu, hönnun og iðnaði.

Önnur hæfniviðmið: ​

Nemandi :
  • umgengst staðinn, náttúruna og efniviðinn af virðingu og nýtni,
  • umgengst efniviðinn af virðingu og nýtni,
  • tekur þátt í hugmyndavinnu og sköpunarferli verkefnisins,
  • reynir að finna lausnir við útfærslu og framkvæmd,
  • getur unnið sjálfstætt og í samvinnu, 
  • sýnir frumkvæði í vinnu sinni, 
  • nýtt fyrri reynslu og verkkunnáttu við verkið, reynir að finna lausnir og gera sjálfur.
  • nýtir sér eigin styrkleika við verkin sem gera þarf ,
  • upplifir gildi útiveru og krafti samvinnu,
  • tekur þátt í leikjum og umræðum sem skapast.
TIL BAKA
Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • HEIM
  • Leiðbeiningar
    • Notkun á námsefninu
  • Fræðsla
    • Sjálfbærni
    • Neysla
    • ​Textíl-og tískuiðnaðurinn >
      • Fatasóun
      • Skynditíska
      • Sjálfbær Tíska
    • Úrgangur
    • Hvað getum við gert?
  • Börn Hafa Áhrif
  • Verkefni
    • Endurvinnslu Verkefni
    • Náttúrutengd Verkefni
    • Samfélagstengd Verkefni
  • Ítarefni
  • Um Okkur