HÆFNIVIÐMIÐ FYRIR VERKEFNIÐ ÞRÆÐIR ÚR NÁTTÚRUNNI
HÆFNIVIÐMIÐ ÚR AÐALNÁMSKRÁ
Sameiginleg hæfniviðmið fyrir list-og verkgreinar:
1. - 4. bekkur:
• unnið eftir einföldu ferli frá hugmynd til afurðar, • hagnýtt þá leikni sem hann hefur öðlast í einföldum verkefnum, • útskýrt á einfaldan hátt áhrif vinnu sinnar á umhverfið, • tjáð sig á einfaldan hátt um viðfangsefni sitt, • gengið frá eftir vinnu sína, • unnið einföld verkefni í hópi. |
5. - 7. bekkur:
• útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd til afurðar, • hagnýtt leikni og þekkingu sem hann hefur öðlast til að takast á við fjölbreytt viðfangsefni, • haft sjálfbærni að leiðarljósi í vinnu sinni, • beitt helstu tækni sem námsgreinin býr yfir, • sýnt ábyrga og örugga umgengni við vinnu og frágang á vinnusvæði, • tekið tillit til annarra í hópvinnu og sýnt frumkvæði, |
8. - 10. bekkur:
• unnið sjálfstætt eftir vinnuferli frá hugmynd til lokaafurðar og greint frá mismunandi nálgun við vinnuna, • hagnýtt þá sérhæfðu leikni og þekkingu sem hann hefur öðlast á skapandi hátt og sýnt frumkvæði, • skipulagt vinnu sína með sjálfbærni í huga, • beitt þeirri tækni sem námsgreinin býr yfir á sjálfstæðan hátt, • sýnt frumkvæði í góðri umgengni og frágangi á vinnusvæði, • tekið þátt í samvinnu með sameiginlegt markmið hópsins að leiðarljósi. |
Hæfniviðmið fyrir textílmennt:
1. - 4. bekkur:
• notað einfaldar aðferðir greinarinnar og beitt viðeigandi áhöldum, • unnið eftir einföldum leiðbeiningum. • tjáð hugmyndir sínar með einfaldri skissu, • skreytt textílvinnu á einfaldan hátt, • gert grein fyrir mismunandi tegundum handverks og notað nokkur hugtök sem tengjast greininni. |
5. - 7. bekkur:
•beitt grunnaðferðum og áhöldum greinarinnar, • þróað eigin hugmyndir í textílverk og unnið eftir ferli, • notað fjölbreyttar aðferðir við skreytingar textíla. • útskýrt hagnýtt og fagurfræðilegt gildi handverks og fjallað um fagurfræði í eigin verkum. |
8. - 10. bekkur:
|
Önnur hæfniviðmið:
Nemandi :
- umgengst náttúruna og efniviðinn af virðingu og nýtni,
- getur unnið samþætt að verkefni í textílmennt og náttúrufræði,
- leggur sig fram við hugmyndavinnu og sköpunarferli verkefnisins,
- reynir að finna lausnir við útfærslu og framkvæmd,
- sýnir frumkvæði í vinnu sinni,
- nýtt fyrri reynslu og verkkunnáttu við verkið, reynir að finna lausnir og gera sjálfur.
- upplifir gildi útiveru og rannsókn á náttúrunni.